Þrátt fyrir að Jón Trausti sé helst kunnur fyrir skáldsögur sínar eins og Höllu og Önnu frá Stóru-Borg, þá megum við ekki gleyma því að hann skrifaði einnig margar mjög góðar smásögur og þegar honum tókst best upp eru smásögur hans með því besta sem komið hefur út í þeirri grein á íslensku.
Sagan „Spilið þið, kindur“ kom fyrst út eftir lát Jóns árið 1920 og er ásamt mörgu öðru að finna í öðru bindi ritsafns hans undir yfirheitinu Samtíningur. Sögusviðið er lítið ónefnt þorp og er sögumaður að segja frá atburði sem átti sér stað í æsku hans og hafði mikil áhrif á hann. Er þetta tilfinningaþrungin og spennandi saga.
Ingólfur B. Kristjánsson les.
Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir almennar tölvur.
Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir spjaldtölvur og snjallsíma.
Lengd : 00:37:11 34 MB
