Áskriftarskilmálar Hlusta.is (Hlusta ehf)

  • Hlusta ehf.
  • Laugavegi 163
  • 105 Reykjavík

1. Áskrift veitir áskrifanda aðgang að þeim áskriftarveitum sem áskrifandi hefur valið að greiða fyrir.

2. Áskriftin er einungis til einkanota. Öll afritun, fjölritun og endurbirting er óheimil í hvaða formi sem er.

3. Uppsögn ber að tilkynna með tölvupósti (hlusta@hlusta.is) eða með munnlegri uppsögn í síma 551 6480, og tekur hún þá gildi strax og núverandi áskriftartímabil líkur. Þ.e. ef um mánaðaráskrift er að ræða tekur hún gildi strax og núverandi mánaðaráskrift líkur. Ef um ársáskrift er að ræða tekur hún gildi strax og núverandi ársáskrift líkur.

4. Kjósi áskrifandi að tilkynna uppsögn eða breyta áskrift ber honum að tilkynna allar slíkar breytingar til Hlusta.is (Hlusta ehf) í tölvupósti á netfangið hlusta@hlusta.is. Öll ábyrgð með slíkar tilkynningar berist til Hlusta.is (Hlusta ehf) á réttan hátt og á réttum tíma liggur hjá áskrifanda.

5. Áskriftargjald hvers mánaðar ber áskrifanda að greiða fyrirfram samkvæmt þeim verðskráreglum sem eru í gildi á hverjum tíma hjá Hlusta.is (Hlusta ehf). Verðskrá getur tekið breytingum á samningstíma.

6. Hafi áskrifandi athugasemdir við reikninga verður hann að láta vita um þær án tafar með tölvupósti á netfangið hlusta@hlusta.is eða munnlega í síma 5516480. Að öðrum kosti telst reikningurinn samþykktur.

7. Hlusta.is (Hlusta ehf) virðir almenna skilmála um varðveislu kortanúmera frá færsluhirðingafyrirtækjum/kortaútgefendum en að öðru leyti gilda ákvæði persónuverndarstefnu Hlusta ehf um meðferð persónuupplýsinga sem telst órjúfanlegur hluti skilmála þessara.

8. Vakin er athygli á að kreditkort sem skráð er fyrir áskriftarkaupum á Hlusta.is (Hlusta ehf) mun jafnframt vera notað sem greiðslukort fyrir aðrar þjónustur sem kaupandi er áskrifandi af hjá Hlusta ehf og greiðslumáti er greiðslukort.

9. Brjóti áskrifandi gegn áskriftarskilmálum þessum, til dæmis, en ekki takmarkað við, að reynt sé að komast hjá gjaldtöku á óheimilan hátt eða koma gjaldskyldu yfir á óskyldan eða ógjaldfæran aðila, er Hlusta.is (Hlusta ehf) heimilt, án fyrirvara, að loka á áskrift.

10. Hlusta.is (Hlusta ehf) hefur heimild til þess að breyta áskriftarskilmálum. Allar breytingar á skilmálum skulu tilkynntar með skýrum hætti með a.m.k. mánaðar fyrirvara á Hlusta.is (Hlusta eh). Þar skal kynnt í hverju breytingar felast og eftir atvikum veittar upplýsingar um rétt áskrifanda til þess að segja upp gildandi samningi vegna breytinganna.

11. Hlusta.is (Hlusta ehf) áskilur sér rétt að vísa áskrifanda úr viðskiptum sýni hann ítrekaða ósæmilega hegðun í garð starfsfólks. Með ósæmilegri hegðun er átt við t.d. (en ekki eingöngu) ógnanir af einhverjum toga eða hótanir af einhverjum toga. Einnig er heimilt að vísa áskrifanda úr viðskiptum af öðrum ástæðum, svo sem vegna verulegra vanskila.

12. Hlusta.is (Hlusta ehf) áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum vegna nýrra áskriftarleiða, án þess að tilkynna öllum áskrifendum um þær breytingar enda hafa þær breytingar ekki áhrif á gildandi áskriftir.

13. Rísi upp ágreiningur um túlkun og skýringu á skilmálum þessum skal leitast við að ná sáttum með heiðarleika og sanngirni að leiðarljósi. Getur áskrifandi sent Hlusta.is (Hlusta ehf) kvörtun og eftir atvikum rekið mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Áskriftaskilmálar þessir eru sett frá 20. janúar 2020.

Persónuverndarstefna Hlusta ehf

  • Hlusta ehf.
  • Laugavegi 163
  • 105 Reykjavík

Hlusta ehf. (hér eftir „Hlusta“) kappkostar að tryggja vernd persónuupplýsinga og að vinnsla þeirra sé í samræmi við gildandi lög og reglur. Persónuverndarstefna þessi tekur til vinnslu persónuupplýsinga um viðskiptavini sem nýta sér þjónustu Hlusta (notendur), umsækjendur um störf og starfsmenn. Tilgangurinn með henni er að upplýsa hvernig Hlusta safnar og meðhöndlar persónuupplýsingar í starfsemi sinni. Persónuverndarstefna þessi byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Hlusta veitir hljóðbækur og rafbækur til notenda vefsíðunnar https://hlusta.is Bækurnar eru boðnað sem streymi á Hlusta.is.

Hvað er vinnsla persónuupplýsinga?

Persónuupplýsingar eru sérhverjar upplýsingar um persónugreindan eða persónu-greinanlegan einstakling. Einstaklingur telst persónugreinanlegur ef unnt er að persónugreina hann, beint eða óbeint, svo sem með tilvísun í auðkenni eins og nafn, kennitölu, staðsetningargögn, netauðkenni eða einn eða fleiri þætti sem einkenna hann í líkamlegu, lífeðlisfræðilegu, erfðafræðilegu, andlegu, efnalegu, menningarlegu eða félagslegu tilliti. Vinnsla persónuupplýsinga vísar til aðgerðar eða röð aðgerða þar sem persónuupplýsingar eru unnar, hvort sem vinnslan er sjálfvirk eða ekki.

A. Upplýsingar fyrir notendur þjónustunnar

1. Hvaða persónuupplýsingar vinnur Hlusta um notendur?

Hlusta fær persónuupplýsingar um notanda sem hefur óskað eftir aðgangi að þjónustu Hlusta. Aðeins er miðlað þeim persónuupplýsingum til Hlusta sem eru nauðsynlegar til að ná fram þeim markmiðum sem stefnt er að með vinnslunni, s.s. að tryggja notendum þjónustu. Persónuupplýsingar um notendur sem er miðlað til Hlusta, eru eftirfarandi:

  • nöfn
  • kennitölur
  • heimilisföng
  • símanúmer
  • netfang

Við veitingu þjónustunnar kunna að safnast persónuupplýsingar, m.a. viðkvæmar persónuupplýsingar, allt eftir því hvaða upplýsingar viðkomandi skrár hafa að geyma sem notendur óska eftir að fá yfirfært á ritað mál, gögnin eru eingöngu aðgengileg þeim notanda sem setur þau inn. Hlusta vinnur framangreindar persónuupplýsingar sem vinnsluaðili fyrir hönd viðkomandi notenda. Af því leiðir að notandi ber ábyrgð á því að vinnsla persónuupplýsinga af umræddum toga sé heimil samkvæmt gildandi lögum.

2. Hvaðan koma persónuupplýsingarnar?

Persónuupplýsingar berast frá viðkomandi notendum og staðfestast með tölvupósti.

3. Í hvaða tilgangi vinnur Hlusta með persónuupplýsingar?

Hlusta vinnur með persónuupplýsingarnar í þeim tilgangi að veita viðskiptavinum sínum viðeigandi þjónustu, meðal annars:

  • Við þjónustu hljóðbóka og rafbóka.
  • Við sérhæfða þjónustu, s.s. sérsmíði á viðmóti fyrir einstaklinga og stofnanir.
  • til að tryggja gæði þjónustunnar.

4. Varðveisla og varðveislutími persónuupplýsinga

Hlusta varðveitir persónuupplýsingar á öruggan hátt og í samræmi við gildandi lög og reglur. Gerðar hafa verið tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að verja persónuupplýsingar notenda gegn t.d. eyðingu og óheimilum aðgangi. Hlusta varðveitir persónuupplýsingar um notendur aldrei utan EES-svæðisins.

Hlusta varðveitir persónuupplýsingar um notendur á meðan notandi nýtir sér þjónustuna. Hlusta kann hins vegar að varðveita nauðsynlegar upplýsingar, s.s. þau gögn er teljast til bókhaldsgagna í samræmi við ákvæði laga um bókhald.

5. Viðtakendur persónuupplýsinga

Hlusta miðlar ekki persónuupplýsingum um notendur þjónustunnar til þriðju aðila nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga, s.s. með ótvíræðu samþykki viðkomandi eða ef lagaskylda stendur til þess.

Að sama skapi miðlar Hlusta ekki persónuupplýsingum til þriðju aðila sem staðsettir eru utan EES-svæðisins nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga.

B. Upplýsingar fyrir umsækjendur um störf hjá Hlusta

1. Hvaða persónuupplýsingar vinnur Hlusta um umsækjendur?

Hlusta safnar aðeins þeim persónuupplýsingum frá umsækjendum sem nauðsynlegar eru til að hægt sé að leggja mat á hæfni viðkomandi auk samskiptaupplýsinga. Persónuupplýsingarnar sem safnað er frá umsækjendum um störf geta t.d. verið:

  • nöfn;
  • netföng;
  • símanúmer;
  • heimilisföng;
  • ljósmyndir;
  • starfsferill;
  • menntun;
  • aðrar upplýsingar sem umsækjandi kann að deila með Hlusta eða opinberlega, s.s. um tómstundir og áhugamál.

2. Hvaðan koma persónuupplýsingarnar?

Upplýsingarnar koma alla jafna beint frá umsækjendum þegar þeir senda umsókn ásamt fylgigögnum til Hlusta. Umsóknir geta borist með tölvupósti eða á pappírsformi. Í sumum tilfellum koma persónuupplýsingar frá þriðja aðila, t.d. frá umsagnaraðilum á borð við fyrri vinnuveitendur. Eftir atvikum nýtur Hlusta aðstoðar ráðningarskrifstofu í ráðningarferli. Í slíkum tilfellum kunna umsóknargögn að berast frá viðkomandi ráðningarskrifstofu.

3. Í hvaða tilgangi vinnur Hlusta með persónuupplýsingarnar?

Hlusta notar persónuupplýsingar um umsækjendur starfa í ráðningarferlinu meðal annars í eftirfarandi tilgangi:

  • til að auðkenna umsækjendur;
  • til að hafa samband við umsækjendur;
  • til að sannreyna hvort meðmæli og aðrar upplýsingar sem umsækjandi veitir séu réttar;
  • til að meta hæfni umsækjenda til að gegna starfi hjá Hlusta.

Vinnsla Hlusta samkvæmt framangreindu byggist á lögmætum hagsmunum og í því skyni að koma eftir atvikum á samningssambandi við viðkomandi aðila, enda fari vinnsla persónuupplýsinga um þá ekki fram í öðrum tilgangi en að meta hæfni þeirra til að gegna starfi hjá Hlusta.

Í einhverjum tilvikum kann vinnsla að byggja á upplýstu samþykki viðkomandi aðila, svo sem ef um er að ræða viðkvæmar persónuupplýsingar í skilningi 11. gr. laga nr. 90/2018. Þá skal þess gætt að beiðni um samþykki sé sett fram á skiljanlegu og aðgengilegu formi. Viðkomandi hefur rétt til þess að draga samþykki sitt til baka hvenær sem er.

4. Varðveisla og varðveislutími persónuupplýsinga?

Hlusta varðveitir persónuupplýsingarnar á öruggan hátt og í samræmi við gildandi lög og reglur. Gerðar hafa verið tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að verja persónuupplýsingarnar gegn t.d. eyðingu og óheimilum aðgangi. Hlusta varðveitir persónuupplýsingar um umsækjendur aldrei utan EES-svæðisins.

Starfsumsóknir eru varðveittar í tölvukerfum Hlusta á meðan á ráðningarferlinu stendur. Umsóknargögn þeirra sem ekki hljóta starf eru varðveitt í 6-12 mánuði frá því ráðningarferli lýkur. Ef af ráðningu verður varðveitir Hlusta umsóknargögn viðkomandi umsækjanda í samræmi við persónuverndarstefnu Hlusta fyrir starfmenn.

5. Viðtakendur persónuupplýsinga

Hlusta kann að notast við ráðningarskrifstofu í ráðningarferli og getur umsóknargögnum í slíkum tilvikum verið miðlað til viðkomandi ráðningarskrifstofu.

Í öðrum tilvikum miðlar Hlusta ekki persónuupplýsingum um umsækjendur til þriðju aðila nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga, s.s. með ótvíræðu samþykki viðkomandi eða ef lagaskylda stendur til þess.

Að sama skapi miðlar Hlusta ekki persónuupplýsingum til þriðju aðila sem staðsettir eru utan EES-svæðisins nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga.

C. Upplýsingar fyrir starfsmenn Hlusta

1. Hvaða persónuupplýsingum aflar Hlusta um starfsmenn?

Persónuupplýsingarnar sem Hlusta safnar um starfsmenn geta t.d. verið:

  • nöfn
  • kennitölur
  • heimilisföng
  • símanúmer
  • netföng
  • ljósmyndir
  • starfsferill
  • menntun
  • viðkvæmar persónuupplýsingar, s.s. stéttarfélagsupplýsingar og heilsufarsupplýsingar.

2. Hvaðan koma persónuupplýsingarnar?

Oftast er persónuupplýsingunum safnað beint frá starfsmönnum Hlusta, s.s. við gerð ráðningarsamnings, við upphaf starfs, eða þegar þeir skrá vinnustundir og forföll. Í sumum tilfellum fær Hlusta upplýsingar frá þriðja aðila, t.d. frá umsagnaraðilum á borð við fyrri vinnuveitendur.

3. Í hvaða tilgangi vinnur Hlusta með persónuupplýsingar um starfsmenn?

Hlusta vinnur með persónuupplýsingar um starfsmenn að meginstefnu til að fullnægja skyldum sínum samkvæmt ráðningarsamningi, s.s. við greiðslu launa og til að inna af hendi greiðslur til lífeyrissjóða og skattyfirvalda. Einnig eru skráðar upplýsingar til að halda utan um viðveru starfsmanna og forföll þeirra. Þá kunna upplýsingar um starfsmenn að vera nýttar í því skyni að meta frammistöðu þeirra og hæfni í starfi.

4. Varðveisla og varðveislutími persónuupplýsinga?

Hlusta varðveitir persónuupplýsingar um starfsmenn á öruggan hátt og í samræmi við gildandi lög og reglur. Gerðar hafa verið tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að verja persónuupplýsingar gegn t.d. eyðingu og óheimilum aðgangi. Hlusta varðveitir persónuupplýsingar aldrei utan EES-svæðisins. Hlusta varðveitir persónuupplýsingar um starfsmenn á meðan ráðningarsamningur milli aðila er í gildi og í fimm ár frá því að starfsmaður lætur af störfum hjá Hlusta, nema lög heimili annað. Bókhaldsgögn eru varðveitt í samræmi við lög um bókhald nr. 145/1994, en samkvæmt þeim ber að varðveita bókhaldsgögn í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs.

5. Viðtakendur persónuupplýsinga

Hlusta miðlar ekki persónuupplýsingum um starfsmenn til þriðju aðila nema að fengnu ótvíræðu samþykki þeirra eða til þess að uppfylla skyldur samkvæmt ráðningarsamningi. Að sama skapi miðlar Hlusta ekki persónuupplýsingum til þriðju aðila sem staðsettir eru utan EES-svæðisins nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga.

Réttindi skráðra einstaklinga

Þeir einstaklingar sem Hlusta vinnur persónuupplýsingar um eiga rétt á að fá upplýsingar og aðgang að persónuupplýsingum um þá sjálfa sem Hlusta hefur með höndum. Þeir eiga hvenær sem er rétt á að afturkalla samþykki sitt fyrir vinnslu persónuupplýsinga sem byggð er á samþykki. Þeir eiga einnig rétt á að óska eftir að láta leiðrétta, eyða eða takmarka vinnslu persónuupplýsinga um sig eða andmæla slíkri vinnslu. Í ákveðnum tilvikum geta þeir einnig átt rétt á flutningi persónuupplýsinga sem þeir hafa látið Hlusta í té til annars ábyrgðaraðila. Framangreindum réttindum kunna þó að vera sett takmörk í gildandi lögum og reglum.

Sé óskað nánari upplýsingar um framangreint, s.s. hvernig skuli nýta framangreind réttindi skal hafa samband við hlusta@hlusta.is.

Einnig er hægt að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (www.personuvernd.is, postur@personuvernd.is) ef talið er að Hlusta hafi ekki virt réttindi einstaklinga við meðferð á persónuupplýsingum þeirra.

Breytingar

Hlusta áskilur sér rétt til að breyta persónuverndarstefnu þessari eftir því sem þurfa þykir. Nýjasta útgáfa persónuverndarstefnunnar er birt á vefsíðu Hlusta hverju sinni. Persónuverndarstefna þessi er sett 20.11.2023