Hér á ferðinni þriðja bindið í ritröðinni Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi og er helsta umfjöllunarefnið Guðbrandur Þorláksson og öld hans. Farið er yfir eflingu konungsvalds á Íslandi eftir siðskiptin, afskipti konungs af stjórn landsins og ítarlega sagt frá ævi og störfum Guðbrands biskups.
Þetta þriðja bindi kom fyrst út árið 1924. Hafa þessi rit verið ófáanlegt um nokkurn tíma og ætti því að vera fengur öllum þeim sem áhuga hafa á íslenskri sögu.
Páll Eggert fæddist á Stóru-Vogum á Vatnsleysuströnd 3. júní 1883. Foreldrar hans voru Óli Kristján Þorvarðsson, steinsmiður í Reykjavík, og Guðrún Jakobína Eyjólfsdóttir. Páll lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum 1905, cand.phil.-prófi 1906, embættisprófi í lögfræði við HÍ 1918 og hlaut doktorsnafnbót við HÍ 1919 fyrir rit sitt um Jón biskup Arason.
Ritverk Páls eru feikimikil að vöxtum og munar þar um ritaskrá Landsbókasafnsins og skrá yfir rit háskólakennara. Þá tók hann saman lögfræðingatal en er líklega þekktastur fyrir samantekt á Íslenzkum æviskrám. Auk þess má nefna Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi I-IV, Upptök sálma og sálmalaga í lútherskum sið á Íslandi, Jón Sigurðsson I-V, og Sögu Íslendinga IV, V, og fyrri hluta VI bindis.
Jón B. Guðlaugsson les.
Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir almennar tölvur.
Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir spjaldtölvur og snjallsíma.
Lengd : 26:55:54 12,75 GB
