Book cover image

Færeyinga saga

Íslendingasögur

Færeyinga saga

Íslendingasögur

Lengd

3h 55m

Tungumál

Icelandic

Enfisflokkur

Íslendingasögur o.fl.

Færeyinga saga segir einkum frá þeim Sigmundi Brestissyni og Þrándi í Götu sem áttu í töluverðum deilum um yfirráð í eyjunum í kringum árið 1000. Verður að segjast að Þrándur í Götu sé einn af eftirminnilegustu skúrkum íslenskra fornsagna á meðan Sigmundur sver sig í ætt hetja á borð við Gunnar á Hlíðarenda og sviplíkra manna. Sagan segir öðrum þræði frá því þegar Færeyingar tóku kristni en eins og hjá okkur Íslendingum gerðist það með lágmarks átökum. Er sagan mjög skemmtileg og um leið nokkuð ólík þeim helstu Íslendingasögum sem við þekkjum.

Sagan mun vera rituð skömmu eftir 1200 og er höfundur ókunnur. Upprunalega handritið er mönnum glatað en hlutar úr sögunni eru skráðir í önnur rit eins og Ólafs sögu Tryggvasonar og Flateyjarbók.

Ingólfur B. Kristjánsson les.

Sýna minna

Kafli

Forsíða

Flokkar

Leit

Bókasafnið þitt

Valmynd

Innskráning