Endurminningar

Páll Melsteð

Um söguna: 

Páll Melsteð (1812-1910) var stórmerkur maður og langt á undan sinni samtíð eins og sjá má m.a. af því að hann ásamt konu sinni Þóru Melsteð stofnaði Kvennaskólann í Reykjavík árið 1874. Þá ritaði hann grein árið 1869 sem birtist í Norðanfara undir yfirheitinu Hvað verður hjer gjört fyrir kvennfólkið? og fjallaði um menntun stúlkna eða skort á henni. Slíkt var ekki mörgum hugleikið á þeim tímum.

Í endurminningunum fáum við ágæta innsýn inn í huga hans en auk þess eru þær góð samtímalýsing og ólíkt mörgum öðrum endurminningum er höfundur þeirra laus við að upphefja sjálfan sig.

Páll var einn af okkar fyrstu sagnfræðingum og komu út fjórar bækur eftir hann um það efni: Ágrip af merkisatburðum mannkynssögunnar (1844), Fornaldarsagan, íslenskuð og aukin eftir sögubók H. G. Bóhrs (1864), Miðaldasagan (1866) og Norðurlandasaga, eða Dana, Norðmanna og Svía saga (1891).

Hægt er að hlusta á Norðurlandasögu hans hér á Hlusta.is og er hún hreint ótrúlega áhugaverð og skemmtileg bók. Og þrátt fyrir að hafa komið út árið 1891 er hún á afar auðveldu máli og skýr í allri framsetningu. Í bókinni rekur Páll sögu þessara þriggja ríkja frá upphafi fram til 1863. Hér kynnumst við öllum þeim höfðingjum sem ríktu og börðust um völdin í þessum ríkjum og þá líka Íslandi, þó saga okkar sé ekki fyrirferðarmikil í þessari bók. Bókin skiptist í þrjá meginkafla: Fornöldin til 1060, Miðöldin frá 1060 til 1523 og Nýja öldin frá 1523 til 1872. Bókin var gefin út af Hinu íslenska bókmenntafélagi árið 1891.

Ingólfur B. Kristjánsson les.

Ævisögur og frásagnir
Sækja fyrir almennar tölvur

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir almennar tölvur.

Sækja fyrir spjaldtölvur og snjallsíma

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir spjaldtölvur og snjallsíma.

Lengd : 05:11:57 299,6 MB

Cover Image: 
Lazy Loader Icon
Minutes: 
312.00
Endurminningar
Páll Melsteð