Lengd
6h 20m
Tungumál
Icelandic
Enfisflokkur
Æviminningar
Skrif Jóns Pálssonar komu út í þremur bindum við ævilok hans undir nafninu Austantórur I–III. Eru þau fróðlegur lestur og hlustun okkur 21. aldar mönnum, eða eins og Jón sjálfur orðaði það:
„Öllum þeim er línur þessar lesa hlýtur að verða það ljóst, hversu mikið menn urðu oft og einatt að leggja á sig og að sér í baráttunni fyrir lífinu. Mættu línur þessar verða til þess að kenna ungu kynslóðinni að meta að verðleikum baráttuna sem feður þeirra og mæður urðu að heyja fyrir velferð hinna ungu karla og kvenna og taka framfaraviðleitni þeirra sér til eftirbreytni. Stríð þeirra og strit var fyrir þau og þeim er að þakka að æskan fær nú að lifa við betri kjör en áður þekktust.“
Jón Pálsson (1865–1946) var fjölhæfur maður og fjölgáfaður er lagði gjörva hönd á margt um daga sína. Einna lengst mun hans minnst fyrir frumkvöðlastarf sitt í sunnlensku tónlistarlífi – einkum orgelleik og kórastarfi – en ekki hvað síst fyrir elju hans í söfnun og hljóðritun íslenskra þjóðlaga, löngu áður en öðrum hugkvæmdist varðveisla af því tagi. Þannig mun sálmalagið fagra, „Víst ertu Jesú kóngur klár,“ hafa varðveist fyrir hans tilverknað, útsett af bróðursyni hans, Páli Ísólfssyni tónlistarmanni.
Jón var borinn og barnfæddur á Stokkseyri og kynntist ungur hinum hörðu lífskjörum bænda og sjósóknara við suðurströnd landsins á 19. öld, enda deildi hann kjörum við Stokkseyringa allt til ársins 1903 er hann fluttist til Reykjavíkur og gerðist m.a. fyrsti orgelleikari Fríkirkjunnar. Af einstakri natni, skarpskyggni og elju skráði hann fjölmargar þjóðlífsmyndir úr heimasveitum sínum er veita nútímamönnum glögga innsýn í harðræði og fátækt fyrri tíðar kynslóða – en einnig útsjónarsemi þeirra, dugnað og þekkingu á stóru sem smáu er gjörði þeim kleift að takast á við náttúruöflin og komast af, kynslóð fram af kynslóð.
Jón B. Guðlaugsson les.
1
01. lestur
Jón Pálsson
22:17
2
02. lestur
Jón Pálsson
19:48
3
03. lestur
Jón Pálsson
26:16
4
04. lestur
Jón Pálsson
28:27
5
05. lestur
Jón Pálsson
40:13
6
06. lestur
Jón Pálsson
18:54
7
07. lestur
Jón Pálsson
15:38
8
08. lestur
Jón Pálsson
10:22
9
09. lestur
Jón Pálsson
33:59
10
10. lestur
Jón Pálsson
14:47
11
11. lestur
Jón Pálsson
18:43
12
12. lestur
Jón Pálsson
23:33
13
13. lestur
Jón Pálsson
23:23
14
14. lestur
Jón Pálsson
16:43
15
15. lestur
Jón Pálsson
13:20
16
16. lestur
Jón Pálsson
13:57
17
17. lestur
Jón Pálsson
25:33
18
18. lestur
Jón Pálsson
13:39