Lengd
5h 54m
Tungumál
Icelandic
Enfisflokkur
Skáldsögur
Sögunar um Valeyg lögregluspæjara komu fyrst út í Reykjavík árið 1912 og kostnaðarmaður er sagður vera Jóh. Jóhannesson. Hvorki höfundar né þýðanda er getið en við á Hlusta höfum komist að því að þessar stórskemmtilegu sögur eru eftir Thomas Waters sem var vinsæll höfundur glæpasagna á síðari hluta 19. aldar í Bretlandi og Bandaríkjunum. Hafa sögur hans verið endurútgefnar á vefsíðunni The Westminster Detective Library, en sá vefur hefur það að markmiði að skrá niður, flokka og gera aðgengilegar á Netinu allar styttri sakamálasögur sem útgefnar voru fyrir árið 1891, þegar fyrsta sagan um Sherlock Holmes kom út í Bandaríkjunum.
Kristján Róbert Kristjánsson les.