Lengd
8h 20m
Tungumál
Icelandic
Enfisflokkur
Skáldsögur
Aðalsmærin og járnsmiðurinn er ástar- og örlagasaga eftir Jeffery Farnol. Hér segir frá ungum aðalsmanni, Pétri, sem er munaðarlaus en alinn upp af frænda sínum. Hann fer á flakk sökum peningaleysis og gerist járnsmiður í litlu þorpi. Hann kemur sér fyrir í litlum kofa í nágrenni þorpsins og þar banka örlögin upp á þegar hann bjargar ungri stúlku frá mannræningja.
Breski rithöfundurinn Jeffery Farnol (1907-1952) skrifaði yfir 40 ástarsögur sem og ævintýrasögur. Hann var einna fyrstur til að skrifa svokallaðar „regency“-ástarsögur, sögulegar ástarsögur sem fjalla að mestu leyti um yfirstéttarfólk í Bretlandi á tímabilinu 1810-1830.
Þóra Hjartardóttir les.