Lengd
2h 14m
Tungumál
Icelandic
Enfisflokkur
Æviminningar, Fróðleikur
Hér er á ferðinni nokkuð ítarleg frásögn af þessu kunna útilegufólki. Er hún skemmtilega skrifuð og gefur einstaka innsýn inn í erfitt lífshlaup þeirra og er í leiðinni frábær samtímalýsing. Þátturinn kom fyrst út í Reykjavík árið 1914.
Fjalla-Eyvindur Jónsson (f. 1714, d. fyrir 1783) er einn þekktasti útilegumaður Íslandssögunnar og var raunveruleg persóna sem uppi var á 18. öld. Hann var fæddur í Hlíð í Hrunamannahreppi í Árnessýslu. Kona Fjalla-Eyvindar, sem lá úti með honum, var Halla Jónsdóttir. Þau höfðu bústaði víða um land, m.a. á Hveravöllum, í Þjórsárverum og í Drangavík á Ströndum. Dómsskjöl sýna að þau hafa átt börn í útlegðinni sem dóu ung en Eyvindur átti einn son áður en hann lagðist út. Fjalla-Eyvindur er grafinn á Hrafnsfjarðareyri í Hrafnsfirði á Jökulfjörðum. Halla andaðist árið 1792 og hvílir í ómerktri gröf á Stað í Grunnavík.
Um Fjalla-Eyvind og Höllu er til mikið af þjóðsagnaefni og einnig töluverðar sögulegar heimildir. Þau eru aðalpersónur í leikriti Jóhanns Sigurjónssonar, Fjalla-Eyvindur, sem víða hefur verið leikið og sænski leikstjórinn Victor Sjöström gerði kvikmynd eftir árið 1918.
Gísli Konráðsson (18. júní 1787 – 2. feb. 1877) var bóndi, alþýðufræðimaður og sagnaritari á 19. öld. Eftir hann liggur geysilega mikill fróðleikur af ýmsu tagi og hafa sum verka hans verið gefin út að honum látnum. Hann varð einhver mesti fræðimaður Íslendinga úr hópi óskólagenginna manna. Hann var líka skáld, orti rímur og lausavísur. Nær ekkert af verkum hans kom út að honum lifandi nema Rímur af Andra jarli, en töluvert hefur verið gefið út síðan. Sonur Gísla var Konráð Gíslason Fjölnismaður.
Jón B. Guðlaugsson les.