img

Bókin um ESB: hvað er í pakkanum?

Frosti Sigurjónsson

Lengd

6h 25m

Tungumál

Icelandic

Enfisflokkur

Fróðleikur

Þessi bók er skrifuð af því tilefni að Íslendingar gætu fljótlega þurft að taka af­stöðu til þess hvort innganga í Evrópusambandið sé skynsamleg. Þetta er ekki bók um kosti og galla aðildar Íslands að ESB, heldur gefur hún greinargóða lýsingu á uppbyggingu sambandsins, stjórn­kerfi þess og þróun til dagsins í dag. Sérstaklega er fjallað um eigin­leika tolla­banda­lags ESB, stefnu þess í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum og einnig um utanríkismál ESB og myntbanda­lag evrunnar. Áföll eins og fjármálahrun, Brexit, flóttamannavandi og heims­faraldur, sýna styrkleika og veikleika sambandsins og bókin rekur hvernig ESB gekk að vinna úr þeim. Í byrjun árs 2026 glímdi Evrópusambandið við stór vandamál sem tekin eru til skoðunar í bókinni, svo sem vaxandi lýðræðishalla, öldrun, versn­andi skulda­stöðu, ófjármagnaða lífeyrissjóði, stríð í Úkraínu, hátt orku­verð og ef­na­hags­samdrátt. Á sama tíma hefur fylgispekt aðildar­ríkjanna við stefnu og ýmsar ákvarðanir ESB minnkað. Evrópusambandið er nú á krossgötum. Leiðtogar sumra aðildarríkja og æðstu embættismenn ESB segja nauð­syn­legt að ESB verði að sam­bands­ríki og herveldi til að ráða við aðsteðjandi vandamál og treysta stöðuna í sam­keppni stór­velda í framtíðinni. Þessi bók er skrifuð fyrir þá sem vilja skilja betur hvernig ESB starfar og hverjar áskoranir þess eru í dag, einskonar rýniskýrsla og skyldu­lesning fyrir þá sem vilja vita „hvað er í pakkanum“. Lesari er gervigreindin Davíð. Hljóðbókin er efnislega eins og bókin fyrir utan myndir og neðanmálsgreinar.
Sýna minna

Forsíða

Flokkar

Leit

Bókasafnið þitt

Valmynd

Innskráning