Lengd
2h 35m
Tungumál
Icelandic
Enfisflokkur
Styttri sögur
Þúsund og ein nótt er safn af sögum frá ýmsum höfundum og úr ýmsum ritum. Sögurnar eiga rætur að rekja til Arabíu, Indlands, Persíu, Egyptalands og Sýrlands meðal annars, allt frá fornöld til miðalda. Talið er að safnið sjálft megi rekja til 8. eða 9. aldar. Safnið er til í mörgum útgáfum en allar eiga þær það sameiginlegt að innihalda rammafrásögn um konunginn Sarjar og konu hans Sjerasade. Þekktustu sögurnar úr sagnasafninu eru sögurnar af Alí Baba, Aladdín og Sindbað sæfara. Sögurnar eru, eins og Íslendingasögurnar og kviður Hómers, hluti af sagnaarfi heimsins og ættu að vera hverjum manni hugleiknar og svo eru þær líka afar skemmtilegar. Í þessari fjórðu bók okkar segir frá Sindbað sæfara og sjö ferðum hans sem voru hver annarri ævintýralegri og skemmtilegri. Eru sögurnar hér í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar.
Ingólfur B. Kristjánsson les.
1
Saga Sindbaðs farmanns
08:41
2
Fyrsta ferð Sindbaðs
17:51
3
Önnur ferð Sindbaðs farmanns
16:44
4
Þriðja ferð Sindbaðs farmanns
24:37
5
Fjórða ferð Sindbaðs farmanns
27:48
6
Fimmta ferð Sindbaðs farmanns
15:33
7
Sjötta ferð Sindbaðs farmanns
23:57
8
Sjöunda og síðasta ferð Sindbaðs farmanns
19:36