Lengd
5h 21m
Tungumál
Icelandic
Enfisflokkur
Bækur á ensku
The Jungle Book er sígilt safn af sögum eftir enska rithöfundinn Rudyard Kipling. Hér segir frá drengnum Mowgli sem elst upp hjá úlfum í frumskógi á Indlandi. Sögurnar komu fyrst út á árunum 1893-1894 og hafa notið vinsælda allar götur síðan.
Rudyard Kipling var stórvirkur rithöfundur og skrifaði sögur fyrir bæði fullorðna og börn, auk þess sem hann var mikilsvirt ljóðskáld. Kipling, sem fæddist á Indlandi, var fyrsti Bretinn til að hljóta Nóbelsverðlaunin í bókmenntum og var það árið 1907. Í dag er hann einkum kunnur fyrir barnabækur sínar, The Jungle Book og Just So Stories, sem er nokkur synd þar sem margt af því sem hann skrifaði fyrir fullorðna stendur enn fyllilega undir nafni og á fullt erindi til samtímans. Smásögur hans þóttu mjög hugvitssamlega uppbyggðar og Kipling er almennt talinn hafa víkkað út smásöguformið. Sögur hans fyrir fullorðna hafa þó gjarnan þótt hafa verið hallar um of undir bresku heimsvaldastefnuna og sumir hafa jafnvel gengið svo langt að segja að hann sýni öðrum þjóðum hroka í skrifum sínum. Menn er þó ekki á eitt sáttir um það og hvað sem því líður þá bjó hann yfir stórkostlegum hæfileikum til að skrifa sögur.
Phil Chenevert les á ensku.