Lengd
1h 55m
Tungumál
Icelandic
Enfisflokkur
Styttri sögur
Egill er smásaga eftir norska rithöfundinn John Lie. Hér segir frá er tíu ára dreng sem hefur skólanám í fyrsta skipti eftir að hafa alist upp í óbyggðum hjá föður sínum og ömmu. Hann mætir talsverðu mótlæti í fyrstu og fær óblíðar móttökur hjá sumum samnemenda. Hann gefst þó ekki upp og með tímanum fær hann tækifæri til að sýna hvað í honum býr. Sagan kom áður út á íslensku árið 1926 undir titlinum Egill á Bakka.
Höfundurinn, John Lie (1846-1916), var frá Þelamörk í Noregi. Hann starfaði sem kennari og bóndi auk þess að fást við skriftir. Hann skrifaði bæði sögur og ljóð og nutu mannlífs og sveitasögur hans talsverðra vinsælda.
Kristján Róbert Kristjánsson les.