Lengd
12h 41m
Tungumál
Icelandic
Enfisflokkur
Skáldsögur
Perlumærin er skáldsaga eftir enska rithöfundinn H. Rider Haggard (1856-1925). Undirtitill íslenskrar þýðingar frá 1934 er Söguleg skáldsaga frá eyðileggingu Jerúsalemsborgar, en fyrri hlutinn gerist þegar rómverskar hersveitir leggja undir sig Landið helga og leggja Jerúsalem í rúst. Þetta er ástarsaga þar sem aðalpersónur eru hin kristna Mirjam, sem ólst upp meðal Essea, gyðingurinn og uppeldisfélagi hennar Khaleb og Rómverjinn Markús. Báðir girnast þeir Mirjam. Trú þeirra þriggja og afstaða skipta miklu máli um framvindu sögunnar.
Jón Leví þýddi söguna sem gefin var út árið 1934 undir merkjum Vikuritsins - Reykjavík og prentsmiðju Jóns Helgasonar.
Kristján Róbert Kristjánsson les.