Lengd
5h 3m
Tungumál
Icelandic
Enfisflokkur
Styttri sögur
Þúsund og ein nótt er safn af sögum frá ýmsum höfundum og úr ýmsum ritum. Sögurnar eiga rætur að rekja til Arabíu, Indlands, Persíu, Egyptalands og Sýrlands meðal annars, allt frá fornöld til miðalda. Talið er að safnið sjálft megi rekja til 8. eða 9. aldar. Safnið er til í mörgum útgáfum en allar eiga þær það sameiginlegt að innihalda rammafrásögn um konunginn Sarjar og konu hans Sjerasade. Þekktustu sögurnar úr sagnasafninu eru sögurnar af Alí Baba, Aladdín og Sindbað sæfara. Sögurnar eru, eins og Íslendingasögurnar og kviður Hómers, hluti af sagnaarfi heimsins og ættu að vera hverjum manni hugleiknar og svo eru þær líka afar skemmtilegar. Í þessari tíundu bók eru nokkrar stórskemmtilegar yfirsögur: Sagan af Ganem ástarþræl, syni Abú Aíbú, Sagan af Seyn Alasnam kóngssyni og konungi andanna og Ævintýri kalífans Harúns Alrasjíds. Allt stórskemmtilegar og áhugaverðar sögur.
Ingólfur B. Kristjánsson les.
1
Sagan af Ganem ástarþræl, syni Abú Aíbú
11:13
2
Saga þrælsins Kafúrs
10:05
3
Framhald sögunnar af Ganem ástarþræl (1)
24:08
4
Framhald sögunnar af Ganem ástarþræl (2)
24:21
5
Framhald sögunnar af Ganem ástarþræl (3)
24:01
6
Framhald sögunnar af Ganem ástarþræl (4)
18:24
7
Sagan af Seyn Alasnam kóngssyni og konungi andanna (1)
18:52
8
Sagan af Seyn Alasnam kóngssyni og konungi andanna (2)
18:42
9
Sagan af Seyn Alasnam kóngssyni og konungi andanna (3)
14:30
10
Ævintýri kalífans Harúns Alrasjíds
10:09
11
Sagan af Baba Abdalla hinum blinda
28:58
12
Sagan af Sídí Númann (1)
17:04
13
Sagan af Sídí Númann (2)
14:32
14
Sagan af Kojja Hassan Alhabbal (1)
16:25
15
Sagan af Kojja Hassan Alhabbal (2)
18:39
16
Sagan af Kojja Hassan Alhabbal (3)
19:37
17
Sagan af Kojja Hassan Alhabbal (4)
13:13