Lengd
4h 7m
Tungumál
Icelandic
Enfisflokkur
Fróðleikur
Bókina Hákarlalegur og hákarlamenn skrifaði Theódór að beiðni ýmissa framámanna sem vildu að sú þekking sem hann hafði á þessum atvinnuvegi, þessum stórmerka þætti í atvinnusögu okkar Íslendinga, glataðist ekki. Var hann m.a. kostaður af Sigurði Nordal þegar hann skrifaði bókina.
Er hér um að ræða ómetanlega heimild um líf sem Theódór þekkti vel af eigin raun, þar sem dauðinn var sífellt nálægur og lífsbaráttan hörð. Theódór segir okkur hér frá því hvernig menn sóttu hákarl, hvaða nytjar var hægt að hafa af honum, frá mönnunum sem sóttu hann í hyldýpi hafsins og öðru sem þessu tengdist. Og hann segir okkur það á sinn ótrúlega látlausa og einfalda hátt þannig að við verðum næstum því þátttakendur í öllu saman. Slíkt geta bara snillingar.
Theódór Friðriksson (1876-1948) rithöfundur var eitt af undrabörnum íslenskrar menningarsögu. Sjálfsævisaga hans Í verum kom út í tveim bindum árið 1941, og varð þegar í stað þekkt um allt land, lesin af ungum og gömlum, og dáð af öllum sem kunnu að meta vel sagða sögu á auðugu og hressilegu máli.
Ingólfur B. Kristjánsson les.
1
01. Skip og útbúnaður
Theódór Friðriksson
20:45
2
02. Sumarmálagarðurinn
Theódór Friðriksson
09:12
3
03. Hákarlalegur á þilskipum (1)
Theódór Friðriksson
23:42
4
04. Hákarlalegur á þilskipum (2)
Theódór Friðriksson
29:49
5
05. Daglegt líf á eyfirskum hákarlaskipum (1)
Theódór Friðriksson
31:24
6
06. Daglegt líf á eyfirskum hákarlaskipum (2)
Theódór Friðriksson
20:58
7
07. Uppskipun á lifur og hirðing á hákarli
Theódór Friðriksson
11:21
8
08. Látrafeðgar og Felix
Theódór Friðriksson
20:47
9
09. Síðasta hákarlaferðin á Látra-Felix
Theódór Friðriksson
21:01
10
10. Frá Hákarla-Jörundi
Theódór Friðriksson
13:37
11
11. Í hákarlalegum með Guðmundi Jörundssyni
Theódór Friðriksson
25:20
12
12. Ýmsar hákarlasögur
Theódór Friðriksson
18:47