Lengd
3h 8m
Tungumál
Icelandic
Enfisflokkur
Skáldsögur
Knútur í Álmvík er norsk sveitasaga og fjallar eins og nafnið gefur til kynna um drenginn Knút sem býr ásamt einstæðri móður sinni í Álmvík. Knútur er drengur góður, en á sér óvildarmann sem er jafnaldri hans, Óli frá Gröf, sem reynir að skemma fyrir honum á ýmsan máta. Knútur lendir í margvíslegum erfiðleikum af þeim sökum og ekki bætir úr skák þegar sorgin ber að dyrum. Eftir það fer Knútur til Ameríku eins og margir landar hans, en hann snýr aftur og verður þá uppgjör milli fornra fjenda.
Höfundurinn, John Lie (1846-1916), var kennari og bóndi, auk þess sem hann skrifaði sögur og ljóð bæði á norsku og dönsku. Sumar af sögum hans voru birtar í tímaritum Norðmanna vestanhafs og nutu mikilla vinsælda. Sonur hans, Haakon Lie (1884-1970), var einnig rithöfundur og var þekktur barnabókahöfundur í heimalandi sínu.
Kristján Róbert Kristjánsson les.