Book cover image

Sögur frá Skaftáreldi II: Sigur lífsins

Jón Trausti

Sögur frá Skaftáreldi II: Sigur lífsins

Jón Trausti

Lengd

9h 56m

Tungumál

Icelandic

Enfisflokkur

Skáldsögur

Sögur frá Skaftáreldi I–II komu út á árunum 1912 -1913.

Voru það fyrstu sögulegu skáldsögur Jóns Trausta (Guðmundar Magnússonar), en þar notar hann Skaftárelda sem umhverfi fyrir dramatíska atburðarás. Fyrri hlutinn ber heitið Holt og skál, en sá seinni Sigur lífsins. Um seinni hlutann skrifaði Steingrímur Matthíasson í blaðið Norðurland: ,,Allir viðburðir í þessari sögu eru bæði sennilegir og sérstaklega fræðandi, enda er inn í söguna ofið mörgum sönnum viðburðum, og fyrst í þessu bindi kynnist maður til hlýtar Jóni Steingrímssyni presti, með svo mörgu skringilegu, sem á daga hans dreif. Jón Trausti á miklar þakkir og mikinn heiður skilinn fyrir alla þá iðni og elju, sem hann hefir sýnt af sér með því að afla sér jafnvíðtækrar sögulegrar þekkingar og útheimtist til að geta ritað aðrar eins bækur og Sögur frá Skaftáreldi eru. Það mun engan iðra þess að fara í gegn um seinna bindið af bókinni, fremur en hið fyrra." Steingr. Matthíasson.

Guðmundur Ingi Kristjánsson les.

Sýna minna

Forsíða

Flokkar

Leit

Bókasafnið þitt

Valmynd

Innskráning
Sögur frá Skaftáreldi II: Sigur lífsins - Hlusta.is | Hlusta.is