Book cover image

Króka-Refs saga

Íslendingasögur

Króka-Refs saga

Íslendingasögur

Lengd

1h 32m

Tungumál

Icelandic

Enfisflokkur

Íslendingasögur o.fl.

Króka-Refs saga er ekki með þekktari Íslendingasögum og hafa menn gjarnan litið framhjá henni, enda er hún um margt ólík þeim sem notið hafa hvað mestra vinsælda. Sagan er á margan hátt skyldari riddarasögum og/eða fornaldarsögum Norðurlanda. Í samanburði við aðrar hetjur úr Íslendingasögunum er sögupersónan Refur nokkurs konar andhetja, eða einhvers konar samsuða andhetju og ofurhetju. Ólíkt öðrum hetjum beitir hann brögðum og orðlist til að ná sínu fram í stað krafta og vopnfimi. Þá finnst honum lítil skömm í því að hliðra sér hjá beinum átökum. En sagan býr yfir ákveðnum töfrum og er skyldulesning allra sem hafa áhuga á Íslendingasögum.

Kristján Róbert Kristjánsson les.

Sýna minna

Forsíða

Flokkar

Leit

Bókasafnið þitt

Valmynd

Innskráning