Lengd
8h 32m
Tungumál
Icelandic
Enfisflokkur
Skáldsögur
Tímamót er skáldsaga eftir Þorstein Gíslason (1867-1938) og segir frá fólki og atburðum á Íslandi um aldamótin 1900. Þorsteinn var ritstjóri, skáld og þýðandi og áhrifamikill í stjórnmálum og menningarlífi landsins á þeim tíma, enda vel kunnungur mönnum og málefnum. Hann var einn af helstu hvatamönnum þess að koma á fót háskóla á Íslandi. Eftir hann liggja nokkrar bækur, en Tímamót var gefin út árið 2020 með formála eftir Þorvald Gylfason, barnabarn höfundar. Þar segir meðal annars að handritið að Tímamótum hafi legið óbirt hjá fjölskyldu Þorsteins frá 1938. Sagan skiptist í tvo hluta, „Reykjavík um aldamótin“ og „Aldamótin úti á landi“. Þorvaldur segir ennfremur: „Höfundurinn lýsir sögunni svo að hún sé aldarfarslýsing og henni sé ætlað að lýsa ástandi landsins á þessum tíma og hugsunarhætti fólksins og breytingum á hvoru tveggja.“ Greina má þjóðþekkta einstaklinga á þessum tíma í sögupersónum. Þorsteinn mun hafa ætlað að skrifa framhald, en ekki enst aldur til. Sögunni lýkur við upphaf heimastjórnar 1904.
Anna Karitas Bjarnadóttir og Þorvaldur Gylfason bjuggu handritið til prentunar, en Skrudda gaf út.
Kristján Róbert Kristjánsson les.