Bjargræði

Hermann Stefánsson
3.333335
Average: 3.3 (3 votes)

Íslenskar skáldsögur

ISBN 978-9935-28-108-1

Um söguna: 
Bjargræði
Hermann Stefánsson
Íslenskar skáldsögur

Bjargræði eftir Hermann Stefánsson er skáldsaga þar sem Látra-Björg (1716–1784) er í aðalhlutverki, en hún var einhver stórbrotnasti karakter Íslandssögunnar, kraftaskáld á tímum þegar kvæði höfðu sannarlega áhrif á veruleikann og komu góðu eða illu til leiðar, sægarpur hinn mesti og fiskin með eindæmum, grálynd og ögrandi galdrakerling og hin versta grýla sem menn bæði óttuðust og virtu, húskona og eigin húsbóndi við svaðalegar aðstæður á Látrum, flökkukona í móðuharðindunum, brennd af háskalegum ástum samkvæmt þjóðtrúnni. Í þessari bók er Björg Einarsdóttir komin til Reykjavíkur í dularfullum erindagjörðum við ókunnugan mann og þótt hún sé fædd fyrir 300 árum hefur hún aldrei verið nær okkur. Hvað vill hún? Hverra erinda gengur hún? Hver er sagan á bak við goðsögnina um Látra-Björgu? Bókina prýðir fjöldi kvæða eftir Látra-Björgu sjálfa. Það er höfundur sem les.

Íslenskar skáldsögur
Sækja fyrir almennar tölvur

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir almennar tölvur.

Sækja fyrir spjaldtölvur og snjallsíma

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir spjaldtölvur og snjallsíma.

Lengd : 06:02:54 332 MB

Minutes: 
363.00
ISBN: 
978-9935-28-108-1
Bjargræði
Hermann Stefánsson