Systir Angela

Systir Angela

Systir Angela er mikil ástar- og örlagasaga. Hér segir frá ungri stúlku, Salome Howland, sem kemur ein til Boston í leit að vinnu. Hún er ráðin til starfa á sjúkrahúsi og þar verður hún til þess að bjarga lífi ungs læknis. Í kjölfarið fella þau hugi saman og gæfan virðist brosa við þeim. En margt fer öðruvísi en ætlað er. Hin tigna og drambsama fjölskylda læknisins reynir allt til að stía ungu hjónunum í sundur og svo fer að leiðir þeirra skilja. Margt ber á daga þeirra næstu tvö árin, en þá, fyrir að því er virðist algjöra tilviljun, hittast þau aftur í París. Hún hefur þá stundað hjúkrun undir vernd Gránunnufélagsins um nokkurt skeið sem systir Angela. Þegar farsótt brýst út í borginni, er það hún, dulbúin í nunnuklæðum, sem hjúkrar manni sínum og hans fólki, án þess að þau þekki hana. Svo kemur í ljós hvernig fer.

Sagan kom áður út í Sögusafni heimilanna árið 1968. Á ensku kom hún fyrst út árið 1892 undir titlinum Wedded by Fate; or, Sister Angela. Höfundurinn hét réttu nafni Sarah Elizabeth Forbush Downs og var bandarísk. Hún skrifaði fjölmargar skáldsögur, ýmist undir sínu eigin nafni eða undir dulnefnunum Georgie Sheldon og George Sheldon Downs.

Þóra Hjartardóttir les.

Book cover image

Saga um Hróa hött

ókunnur höfundur

Saga um Hróa hött

ókunnur höfundur

Book cover image

Erfiði og sársauki

Ernest Legouvé

Erfiði og sársauki

Ernest Legouvé

img

The Bride Comes to Yellow Sky

Stephen Crane

Book cover image

Pride and Prejudice

Jane Austen

Pride and Prejudice

Jane Austen

img

List og lífsskoðun (2. bindi)

Sigurður Nordal

Forsíða

Flokkar

Leit

Bókasafnið þitt

Valmynd

Innskráning