Frásagnir um Einar Benediktsson

Frásagnir um Einar Benediktsson

Í bókinni Frásagnir um Einar Benediktsson er leitast við að gefa heildarsvip af manninum og skáldinu Einari Benediktssyni. Frú Valgerður Benediktsson ritar þar meginefni bókarinnar. Var hún hvött til þess af mörgum mætum mönnum þar sem hún, eiginkona Einars og barnsmóðir, væri eina manneskjan sem gæti lýst ævi hans nokkuð vel eftir nær þrjátíu ára sambúð. Einnig fjallar hún um ljóð hans og eru mörg þeirra birt í bókinni. Ævi þeirra hjóna er um margt merkileg og ólík ævi hins venjulega Íslendings á þessum árum. Þau bjuggu víða, þar á meðal í Englandi, Noregi og Danmörku. Einari var mjög umhugað um að Ísland kæmist út úr þeirri andlegu og fjárhagslegu örbirgð sem hann taldi þjóðina vera í. Hann barðist fyrir því að Íslendingar virkjuðu fallvötnin og nýttu sér heita vatnið. Einnig barðist hann fyrir því að rjúfa einangrun landsins með tilkomu loftskeytasambands milli Íslands og meginlands Evrópu. Hann átti þó ekki alltaf erindi sem erfiði með sín baráttumál. Einnig var hann oft umdeildur og þótti sumum erfitt að skilja hann, bæði ljóðin og baráttu hans fyrir velferð Íslands. Um hann gengu margar sögur, meðal annars þær að hann hefði selt erlendum auðmönnum jarðskjálfta Íslands og norðurljósin.

Frú Valgerði til aðstoðar við skráningu bókarinnar var Guðni Jónsson, Mag. Art. Þrír til viðbótar rita kafla í bókina: Benedikt Sveinsson skjalavörður segir frá þjóðmálastarfi og stefnu Einars. Benedikt var samherji Einars og þekkti hann vel. Árni Pálsson prófessor var mágur Einars. Hann ritar hér endurminningar um Einar og leitast við að lýsa þessum stórbrotna manni. Að lokum ritar Árni Jónsson frá Múla skemmtilega lýsingu á skáldinu Einari, hæfileikum hans sem kaupsýslumanni, persónutöfrum hans og skapferli.

Bókin kom fyrst út hjá Ísafoldarprentsmiðjunni árið 1942.

Þóra Hjartardóttir les.

Book cover image

Saga um Hróa hött

ókunnur höfundur

Saga um Hróa hött

ókunnur höfundur

Book cover image

Erfiði og sársauki

Ernest Legouvé

Erfiði og sársauki

Ernest Legouvé

img

The Bride Comes to Yellow Sky

Stephen Crane

Book cover image

Pride and Prejudice

Jane Austen

Pride and Prejudice

Jane Austen

img

List og lífsskoðun (2. bindi)

Sigurður Nordal

Forsíða

Flokkar

Leit

Bókasafnið þitt

Valmynd

Innskráning