Lengd
5h 48m
Tungumál
Icelandic
Enfisflokkur
Styttri sögur
Guðmundur Friðjónsson (1869-1944) fæddist á Sílalæk í Aðaldal. Um þrítugsaldur hóf hann búskap á Sandi í Aðaldal og bjó þar síðan til dauðadags. Hann var að mestu sjálfmenntaður, alþýðuskáld sem margir vilja meina að hafi verið með betri skáldum síns samtíma.
Guðmundur tók snemma að láta til sín heyra. Fyrsta kvæði hans birtist þegar hann var rösklega tvítugur. Fyrsta smásagnasafnið, Einir, kom út árið 1898, fyrsta kvæðabókin fjórum árum síðar og skáldsagan Ólöf í Ási árið 1907. Næstu áratugina fékkst hann mest við ritun smásagna og dýrasagna, auk fjölda greina og fyrirlestra. Allt var þetta unnið í hjáverkum með erfiðum búskap.
Sjónhringur Guðmundar var ekki víður en hann lýsti næsta nágrenni ágætlega. Sjálfur gerði hann þessa grein fyrir hlutverki sinu meðal samtímahöfundanna: ,,Gestur Pálsson tók sér fyrir hendur að lýsa í sögum hræsninni, Einar H. Kvaran hefur á efra aldri lýst spíritismanum, ég tók mér Íslendingseðlið.'' Stíll Guðmundar er þróttmikill og orðaval fjölbreytt og sérkennilegt. Lýsingar hans á sveitafólki, og þá einkum eldri kynslóðinni, eru frábærar enda sagði fræðimaður einn að sögur hans ,,mættu heita Íslendingasögur hinar nýju.'' Margar lýsa þær alvöru lífsbaráttunnar andspænis harðneskjulegum náttúruöflum. Aðrar segja frá samskiptum ólíkra manngerða. Ósjaldan teflir Guðmundur fram mönnum gamla og nýja tímans, skólagengnum flysjungum og flautaþyrlum annars vegar en hins vegar gömlum og grónum bændum með reynslu kynslóðanna á herðum sér.
Í þessu safni eru smásögurnar Aldurtili Arnalds, Upprisa, Þelsokkar Þórunnar, Fífukveikur, Augnablik, Jólakarfan, Rannsókn, Slysför, Sögur Gunnhildar (Handaflið og Bergmál)og Kastali borgarinnar.
Borgþór Arngrímsson les.
1
01. Aldurtili Arnalds (1)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
12:01
2
02. Aldurtili Arnalds (2)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
12:30
3
03. Aldurtili Arnalds (3)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
12:43
4
04. Upprisa (1)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
10:22
5
05. Upprisa (2)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
09:43
6
06. Upprisa (3)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
12:51
7
07. Þelsokkar Þórunnar (1)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
13:17
8
08. Þelsokkar Þórunnar (2)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
15:59
9
09. Þelsokkar Þórunnar (3)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
06:07
10
10. Fífukveikur (1)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
08:42
11
11. Fífukveikur (2)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
12:11
12
12. Augnablik (1)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
13:46
13
13. Augnablik (2)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
13:07
14
14. Jólakarfan (1)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
13:31
15
15. Jólakarfan (2)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
11:13
16
16. Rannsókn (1)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
13:18
17
17. Rannsókn (2)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
17:40
18
18. Rannsókn (3)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
07:39
19
19. Slysför (1)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
13:35
20
20. Slysför (2)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
17:28
21
21. Sögur Gunnhildar: Handaflið (1)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
12:58
22
22. Sögur Gunnhildar: Handaflið (2)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
09:58
23
23. Sögur Gunnhildar: Bergmál (1)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
14:46
24
24. Sögur Gunnhildar: Bergmál (2)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
16:31
25
25. Sögur Gunnhildar: Bergmál (3)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
09:18
26
26. Sögur Gunnhildar: Bergmál (4)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
10:24
27
27. Kastali borgarinnar (1)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
11:16
28
28. Kastali borgarinnar (2)
Guðmundur Friðjónsson á Sandi
15:36