Book cover image

Héðan og handan (níu sögur)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

Héðan og handan (níu sögur)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

Lengd

5h 42m

Tungumál

Icelandic

Enfisflokkur

Styttri sögur

Guðmundur Friðjónsson (1869-1944) fæddist á Sílalæk í Aðaldal. Um þrítugsaldur hóf hann búskap á Sandi í Aðaldal og bjó þar síðan til dauðadags. Hann var að mestu sjálfmenntaður, alþýðuskáld sem margir vilja meina að hafi verið með betri skáldum síns samtíma.

Guðmundur tók snemma að láta til sín heyra. Fyrsta kvæði hans birtist þegar hann var rösklega tvítugur. Fyrsta smásagnasafnið, Einir, kom út árið 1898, fyrsta kvæðabókin fjórum árum síðar og skáldsagan Ólöf í Ási árið 1907. Næstu áratugina fékkst hann mest við ritun smásagna og dýrasagna, auk fjölda greina og fyrirlestra. Allt var þetta unnið í hjáverkum með erfiðum búskap.

Sjónhringur Guðmundar var ekki víður en hann lýsti næsta nágrenni ágætlega. Sjálfur gerði hann þessa grein fyrir hlutverki sinu meðal samtímahöfundanna: ,,Gestur Pálsson tók sér fyrir hendur að lýsa í sögum hræsninni, Einar H. Kvaran hefur á efra aldri lýst spíritismanum, ég tók mér Íslendingseðlið.'' Stíll Guðmundar er þróttmikill og orðaval fjölbreytt og sérkennilegt. Lýsingar hans á sveitafólki, og þá einkum eldri kynslóðinni, eru frábærar enda sagði fræðimaður einn að sögur hans ,,mættu heita Íslendingasögur hinar nýju.'' Margar lýsa þær alvöru lífsbaráttunnar andspænis harðneskjulegum náttúruöflum. Aðrar segja frá samskiptum ólíkra manngerða. Ósjaldan teflir Guðmundur fram mönnum gamla og nýja tímans, skólagengnum flysjungum og flautaþyrlum annars vegar en hins vegar gömlum og grónum bændum með reynslu kynslóðanna á herðum sér.

Í þessu safni eru smásögurnar Áfelli, Útflutningur, Rekistefna ritstjóranna, Marka-Bergur, Ráðstöfun
Ríka-Steins, Bakvið tjaldið, Kosningin í Króksfjarðarþorpi,
Út við flæðarmálið
og Undraljósið.

Borgþór Arngrímsson les.

Sýna minna

Kafli

1

img

Áfelli

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

14:59

2

img

Útflutningur

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

13:44

3

img

Rekistefna ritstjóranna (1)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

13:08

4

img

Rekistefna ritstjóranna (2)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

16:24

5

img

Marka-Bergur (1)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

11:49

6

img

Marka-Bergur (2)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

10:20

7

img

Ráðstöfun Ríka-Steins (1)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

11:20

8

img

Ráðstöfun Ríka-Steins (2)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

13:17

9

img

Bakvið tjaldið (1)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

10:53

10

img

Bakvið tjaldið (2)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

10:55

11

img

Bakvið tjaldið (3)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

12:55

12

img

Bakvið tjaldið (4)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

15:23

13

img

Bakvið tjaldið (5)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

15:30

14

img

Bakvið tjaldið (6)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

08:20

15

img

Kosningin í Króksfjarðarþorpi (1)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

18:33

16

img

Kosningin í Króksfjarðarþorpi (2)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

10:31

17

img

Kosningin í Króksfjarðarþorpi (3)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

06:50

18

img

Kosningin í Króksfjarðarþorpi (4)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

14:25

19

img

Kosningin í Króksfjarðarþorpi (5)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

14:01

20

img

Kosningin í Króksfjarðarþorpi (6)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

15:08

21

img

Kosningin í Króksfjarðarþorpi (7)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

08:31

22

img

Út við flæðarmálið (1)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

15:43

23

img

Út við flæðarmálið (2)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

16:39

24

img

Út við flæðarmálið (3)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

07:45

25

img

Undraljósið (1)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

07:45

26

img

Undraljósið (2)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

10:37

27

img

Undraljósið (3)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

17:08

Forsíða

Efnisflokkar

Leit

Bókasafnið þitt