img

Lengd

15m

Tungumál

Icelandic

Enfisflokkur

Styttri sögur

Smásagan Guðrún gamla er stutt en hjartnæm saga sem segir frá ungum dreng sem ráðinn er eitt sumar til að sitja yfir ánum á bænum Hóli. Fyrsta daginn er honum fengin til fylgdar gömul kona til að setja hann inn í starfann. Þegar þau eru komin þangað sem féð á að vera segir hún honum sögu úr fortíð sinni. Söguna fengum við úr tímaritinu Syrpu frá árinu 1914.

Jóhannes Friðlaugsson (1882-1955) fæddist á Hafralæk í Aðaldal en foreldrar hans voru Friðlaugur Jónsson og Sigurlaug Jósefsdóttir, ábúendur þar. Ólst hann upp við þröngan kost og var alla tíð heldur heilsuveill. Hann þótti þó mikill skýrleikspiltur og tókst að komast til náms í Möðruvallaskóla og lauk kennaraprófi frá Flensborg árið 1904. Jóhannes stundaði kennslu víða, síðast í Aðaldal. Hann hætti kennslu árið 1949. Hann gat sér gott orð fyrir ritstörf og um hálfrar aldar skeið birtust ljóð hans, smásögur og frásagnir í blöðum, tímaritum og bókum.

Ingólfur B. Kristjánsson les.

Sýna minna

Kafli

1

img

Guðrún gamla

Jóhannes Friðlaugsson

15:26

Forsíða

Efnisflokkar

Leit

Bókasafnið þitt