The Scarlet Pimpernel er söguleg skáldsaga sem gerist á tímum frönsku byltingarinnar. Þetta er fyrsta sagan í röðinni um Sir Percy Blakely sem lifir tvöföldu lífi.
Skáldsagan The Secret Agent: A Simple Tale eftir Joseph Conrad kom fyrst út árið 1907. Sögusviðið er London árið 1886. Hér segir frá Adolf nokkrum Verloc sem starfar sem njósnari. Þetta er ein af pólitísku skáldsögum Conrads, en þær voru fráhvarf frá fyrri skrifum hans um sjóferðir.
The Secret Garden er sígild barnasaga eftir Frances Hodgson Burnett. Mary Lennox er send til að búa hjá frænda sínum í Yorkshire á Englandi eftir að foreldrar hennar látast af veikindum. Við fyrstu sýn líst henni afar illa á hið nýja heimili sitt, sem geymir ýmis leyndarmál.
The Shrieking Pit eftir ástralska rithöfundinn Arthur J. Rees (1872–1942) er gamaldags sakamálasaga af bestu gerð.
The Sign of the Four eftir Arthur Conan Doyle er önnur skáldsagan í röðinni um Sherlock Holmes og Watson lækni. Doyle skrifaði alls fjórar skáldsögur og 56 smásögur um þá félaga.
David Clarke les á ensku.
The Silent Bullet eftir Arthur B. Reeve er fyrsta bókin í röðinni um „vísindalega spæjarann“ Craig Kennedy og blaðamanninn Walter Jameson, félaga hans. Kennedy er háskólaprófessor í efnafræði á daginn, en á kvöldin rannsakar hann dularfull sakamál í New York borg.
The Silver Bullet er spennandi glæpasaga eftir enska rithöfundinn Fergus Hume (1859–1932). Hér segir frá Dr. Jim Herrick sem er á göngu ásamt vini sínum þegar þeir koma að húsi þar sem öll ljós eru kveikt, allar dyr opnar, og maður liggur látinn innan dyra, skotinn til bana.
The Story of an Hour er listilega skrifuð smásaga eftir bandaríska rithöfundinn Kate Chopin (1850-1904). Hér segir frá Louise Mallard sem fær fregnir af láti eiginmanns síns. Sagan veitir innsýn í líf og reynsluheim kvenna á árum áður og tekur fyrir þemu eins og frelsi og fjötra.
The Story of Doctor Dolittle, Being the History of His Peculiar Life at Home and Astonishing Adventures in Foreign Parts er saga fyrir börn um lækni sem lærir að tala við dýr og gerist í kjölfarið dýralæknir. Sagan kom fyrst út árið 1920 og er að einhverju leyti barn síns tíma.
Sagan um Pétur Pan eftir skoska rithöfundinn og leikskáldið J. M. Barrie (1860-1937) er ein þekktasta barnasaga enskra bókmennta.
Phil Chenevert les á ensku.
Hin sígilda saga The Strange Case of Dr Jekyll and Mr Hyde eftir skoska rithöfundinn Robert Louis Stevenson kom fyrst út árið 1886.
Lögfræðingurinn Gabriel John Utterson rannsakar dularfulla atburði er tengjast vini hans, Dr Henry Jekyll, og hinum illa Edward Hyde.
The Strategist er smásaga eftir breska rithöfundinn Saki, sem hét réttu nafni Hector Hugh Munro.
Ruth Golding les á ensku.
The Talleyrand Maxim er sakamálasaga eftir enska rithöfundinn og blaðamanninn J. S. Fletcher. Sagan kom fyrst út árið 1920.
The Thirty-nine Steps eftir John Buchan er æsispennandi saga þar sem fléttast saman njósnir, morð, leyndarmál og hasar. Vorið 1914 er skoski verkfræðingurinn Richard Hannay nýkominn heim til London eftir langa dvöl erlendis.
Tímavélin (The Time Machine) kom út árið 1895 og var fyrsta skáldsagan sem kom út eftir H. G. Wells. Er þetta vísindaskáldsaga og fyrsta bókin af mörgum síðan þar sem þessi hugmynd um tímaflakk með einhvers konar vél er reifað.