Book cover image

Undir beru lofti (Frásagnir um dýr)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

Undir beru lofti (Frásagnir um dýr)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

Lengd

1h 30m

Tungumál

Icelandic

Enfisflokkur

Styttri sögur

Guðmundur Friðjónsson (1869-1944) fæddist á Sílalæk í Aðaldal. Um þrítugsaldur hóf hann búskap á Sandi í Aðaldal og bjó þar síðan til dauðadags. Hann var að mestu sjálfmenntaður, alþýðuskáld sem margir vilja meina að hafi verið með betri skáldum síns samtíma.

Guðmundur tók snemma að láta til sín heyra. Fyrsta kvæði hans birtist þegar hann var rösklega tvítugur. Fyrsta smásagnasafnið, Einir, kom út árið 1898, fyrsta kvæðabókin fjórum árum síðar og skáldsagan Ólöf í Ási árið 1907. Næstu áratugina fékkst hann mest við ritun smásagna og dýrasagna, auk fjölda greina og fyrirlestra. Allt var þetta unnið í hjáverkum með erfiðum búskap.

Stíll Guðmundar er þróttmikill og orðaval fjölbreytt og sérkennilegt. Lýsingar hans á sveitafólki, og þá einkum eldri kynslóðinni, eru frábærar enda sagði fræðimaður einn að sögur hans "mættu heita Íslendingasögur hinar nýju." Margar lýsa þær alvöru lífsbaráttunnar andspænis harðneskjulegum náttúruöflum. Aðrar segja frá samskiptum ólíkra manngerða. Guðmundur samdi einnig allmargar dýrasögur „til þess að bera hönd fyrir höfuð málleysingja“ auk þess sem dýr koma fyrir í öðrum sögum hans.

Í safninu Undir beru lofti eru sögurnar Skjóni, Golti, Álftirnar á Sandvatni, Grænhöfðaöndin, Álftaveiðin og Konungurinn í Stapa.

Borgþór Arngrímsson les.

Sýna minna

Kafli

1

img

Skjóni (1)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

14:12

2

img

Skjóni (2)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

04:46

3

img

Golti

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

13:40

4

img

Álftirnar á Sandvatni

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

13:37

5

img

Grænhöfðaöndin

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

14:29

6

img

Álftaveiðin

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

09:59

7

img

Konungurinn í Stapa (1)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

09:50

8

img

Konungurinn í Stapa (2)

Guðmundur Friðjónsson á Sandi

09:13

Forsíða

Efnisflokkar

Leit

Bókasafnið þitt