Leiðbeiningar um notkun á iTunes og iPod
Hvernig iTunes er notað.
Hvernig á að setja upp (e; Install) iTunes í Windows?
Ágrip um iTunes uppsetningu
Geisladiskur með iTunes hugbúnaðinum fylgir ekki lengur með iPodum en þess í stað er hann sóttur á iTunes vefsíðuna. Eftirfarandi skýrir hvernig þú sækir iTunes og kemur því fyrir (e; install) svo þú getir samhæft (e; sync) iPodinn þinn og tölvuna.
Farðu á http://www.apple.com/itunes/download/ til að sækja rétta útgáfu af iTunes fyrir þína tölvu. Á síðunni velur þú þitt stýrikerfi, velur hvort þú vilt fá reglulega sent fréttabréf og setur inn tölvupóstfang þitt til að byrja niðurhal á iTunes.
Að byrja uppsetningu (e; Install) á iTunes
Þegar iTunes niðurhali er lokið munt þú sjá á skjáborði (e;desktop) tölvunnar þinnar íkon sem merkt er iTunes. Tvísmelltu á þetta íkon og uppsetningin (e; install) hefst.
Fylgdu leiðbeiningum
Röð af fyrirmælum mun birtast. Fylgdu þessum fyrirmælum í gluggunum (e; windows).
Veldu uppsetningu (e; Installer Options) við hæfi
Hluti af uppsetningunni felst í því að iTunes býður þér valkosti og biður þig að velja. Valkostir:
- Setja flýtileið á skjáborðið (e; desktop) - Setur iTunes flýtihnapp á skjáborðið.
- Nota iTunes sem sjálfgefinn (e; default) spilara (e; player) fyrir hljóðskrár - Veldu þetta ef þú vilt að iTunes höndli allar hljóðskrár, þ.m.t. CD diska, hlaðvarp (e; podcast) og niðurhal.
- Koma fyrir (e; install) Apple hugbúnaðarendurnýjun - Ef þetta er valið mun iTunes verða uppfært sjálfkrafa.
- Velja sjálfgefið (e; default) tungumál fyrir iTunes - Veldu það mál sem þér hentar.
- Vistun í möppu - Notið sjálfgefna möppu.
Leit að hljóðskrám
iTunes getur sjálfvirkt skannað harða diskinn í leit að tónlistarskrám og flutt þær yfir í iTunes. Í glugganum hér að ofan er þessi þjónusta boðin. MP3 og AAC skrár eru sjálfgefnar gerðir fyrir iTunes.
WMA er hægt að spila en DRM ekki. Engar WMA skrár er hægt að spila í iPod.
Hafið gott skipulag á tónlistarskránum
iTunes getur haldið utan um skipulagið á tónlistarskránum og þú ritstýrir upplýsingunum um skrárnar. Við mælum með þessu fyrirkomulagi svo veldu "yes" í þessum glugga.
Byrjaðu nú að flytja geisladiskana yfir í iTunes og yfir á iPodinn.
Þegar búið er að setja forritið upp getur þú stofnað reikning í iTunes versluninni ef þér hugnast svo.
Þegar þú ert tilbúinn geturðu tengt og samhæft (e; sync) iPodinn og iTunes. Við það hleðst öll tónlistin í iTunes yfir á iPodinn þinn.
Afritun geisladiska yfir á iPod og iTunes
Yfirlit
Til að hefja afritun af geisladiskum yfir í iTunes og yfir á iPodinn (kallað ripping á ensku) opnaðu iTunes. Vertu viss um að þú sért tengdur við Netið.
Settu geisladiskinn sem þú vilt afrita af í CD/DVD drifið á tölvunni.
Smá stund mun líða áður en glugginn hér að ofan birtist. Ef Netið er tengt birtast í glugganum nöfn geisladisksins, listamannsins og laganna.
Ef þessar upplýsingar birtast ekki þá skaltu fyrst athuga með Nettenginguna en síðan prufa að setja geisladiskinn aftur í tölvuna.
ATHUGIÐ: Sumir geisladiskar eru varðir fyrir afritun yfir í iTunes. Þessi ráðstöfun er umdeild og þar sem óvíst er að henni verði við haldið verður ekki nánar fjallað um slíka afritun hér.
Neðst í hægra horninu er takki sem segir "import." Smelltu á hann og innflutningur á lögum yfir í iTunes hefst.
Lögin flytjast nú yfir í iTunes. Hvernig verkið gengur sést í ramma efst í iTunes glugganum. Merkt er við lög sem búið er að afrita með grænu. Þau lög sem verið er að flytja er merkt við með appelsínugulu.
Bíddu uns öll lögin hafa verið afrituð. Þú bæði sérð og heyrir þegar því er lokið. Tónn heyrist og merkt er við öll lögin með grænu.
Skoðaðu iTunes tónlistarsafnið þitt
Flettu í gegnum iTunes tónlistarsafnið til að finna geisladiskinn sem þú varst að afrita. Ef hann er þar þá ertu tilbúinn. Næst þegar þú samhæfir tölvuna og iPodinn verða nýju lögin flutt yfir á hann.
Hægt er að breyta innflutningsstillingunum fyrir iTunes
Þú getur ráðið hvers konar skrár eru myndaðar í iTunes þegar þú afritar ("rippar") geisladisk og bætir honum við safnið þitt. Allar gerðir hafa sína kosti og galla hvað varðar t.d. gæði og stærð.
Sjálfgefið í iTunes er að nota AAC format kóðað á 128 Kbps (meiri hraði gefur meiri gæði). Þú getur kóðað með meiri hraða eða skipt yfir í MP3. Til að breyta stillingunum gerir þú eftirfarandi:
Opnaðu iTunes og farðu í "Preferences".
Á "Mac" farðu iTunes valseðilinn og veldu "Preferences".
Á PC og Windows ferðu í "Edit menu" og velur "Preferences".
Veldu "Advanced menu" í verkfærastiku og síðan "Importing"
Þú gerir breytingarnar í þessum glugga.
Veldu skrárgerð
Í "Import Using" reitnum velurðu skrársnið, MP3, AAC eða annað.
Veldu hraða í "Setting"
Í "Setting" valmyndinni geturðu valið gæðin með því að stjórna hraðanum. Þú getur valið gæði laganna sem þú flytur inn. Því hærri sem Kbps er sett því meiri gæði en sá böggull fylgir skammrifi að skrárnar verða þeim mun stærri. Þú getur valið úr þeim stillingum sem boðið er upp á eða skapað þína sérstöku stillingu. Endaðu með því að staðfesta valið og smelltu því á "OK".
Lagalistar (e; Playlists) í iTunes
Búðu til lagalista í iTunes
Lagalistar í iTunes eru mjög gagnlegir. Þú getur notað þá til að búa til sérvalda lista t.d. með ákveðnum listamanni, til að brenna diska og til að samhæfa (e; sync) marga iPoda frá sömu tölvum.
Hér fylgir stutt handhægt yfirlit um hvernig búa á til lagalista:
Byrjaðu á því að fara í hornið niðri vinstra megin og smella á plúsmerkið ("+") til að skapa nýjan lagalista.
Gefðu listanum nafn
Eftir að þú hefur smellt á "plús" takkann sérðu nýjan ónefndan (e; untitled) lagalista í röðinni yfir þá lagalista sem fyrir eru. Þú getur nefnt lagalistann með því að skrifa inn í boxið. Smelltu síðan á "enter" eða "return" til að staðfesta nafnið. Ef þú hefur ekki gefið lagalistanum nafn í upphafi geturðu alltaf bætt úr því síðar. Það gerir þú með því að smella á lagalistann og fylgja því eftir augnabliki síðar með því að smella á boxið þar sem stendur "untitled playlist". Nú geturðu sett það nafn sem þér finnst hæfa.
Lögum bætt við lagalistann
Farðu í lagasafnið og veldu það lag sem þú vilt hafa á listanum og dragðu það yfir í íkon nýja lagalistans.
Röð laga á lagalistanum
Þegar þú hefur sett öll þau lög á lagalistann sem þú kýst að hafa þar smelltu þá á nafn hans til vinstri. Lagalistinn birtist þá og þér gefst tækifæri til að laga röð laganna með því að draga þau upp eða niður fyrir önnur eftir því sem við á.
Geisladiskur brenndur
Til að brenna eða útbúa geisladisk verður þú fyrst að velja á lagalistann öll lögin sem þú vilt hafa á honum. Þegar því er lokið setur þú nýjan tóman geisladisk í drifið. Íkon birtist þá neðst til hægri í iTunes glugganum. Smelltu á íkonið til að brenna diskinn. Sjá nánar hér að neðan.
Lagalista má setja á iPodinn. Veldu í viðeigandi lagalista í samhæfingarglugganum fyrir iPodinn.
Til að eyða lagalista smellirðu einu sinni á hann í vinstri dálkinum og smellir svo á "delete" á lyklaborðinu eða hægri-smellir á músina og velur "delete". Ef þú gerir þetta er lagalistinn farinn og honum eytt af iPodinum þótt lögin sjálf séu enn til staðar.
Þegar þú ert að búa til lagalista geturðu samhliða sinnt öðrum verkum því hann vistast sjálfkrafa.
Geisladiskar brenndir með iTunes
Yfirlit um hvernig á að brenna geisladiska með iTunes
iTunes er frábært forrit til að halda utan um lagasafnið þitt og iPodinn en stundum nægir þetta tvennt ekki til að uppfylla þarfir þínar og þú vilt hlusta upp á gamla móðinn á tónlist af geisladiski.
Í þessu tilfelli nýtist iTunes til að búa til geisladiska með því lagavali sem þú kýst eða samansafni af upplestri sem þú óskar eftir á einum diski.
Byrjaðu á að skapa lagalista sem getur hvort heldur verið nákvæmt afrit af öðrum geisladiski eða sérvalið efni sem þú hefur tekið úr ýmsum áttum og þú vilt hafa saman á einum diski.
ATHUGA: Hömlur sem eru settar á tónlist keypta í iTunes verslununni (e; iTunes Store) þ.e. á hversu margar tölvur er hægt að setja tónlistina er hér ekki hindrun og hægt er að brenna fleiri diska. Hins vegar er bara hægt að brenna fimm diska af sama lagalista.
Nafnabreytingar á lagalista
Þegar þú ert búinn að skapa lagalista skaltu breyta nafninu til samræmis við það nafn sem þú vilt að geisladiskurinn beri. Geisladiskurinn mun þá sýna þetta nýja nafn þegar hann er síðar settur í tölvuna til spilunar.
Þú breytir nafninu með því að tvísmella á nafn lagalistans og skrá nafnið eða í Windows með því að hægrismella á lagalistann.
Nýjum lögum bætt við lagalistann
Þegar þú hefur endurnefnt lagalistann ferðu í iTunes lagasafnið þitt og dregur þau lög sem þú vilt hafa á geisladiskinum yfir í nýja lagalistann sem þú varst að skapa. Þú endurtekur uns öll lögin sem þú vilt hafa á diskinum hafa verið afrituð yfir í listann.
Ef þú ætlar að afrita og brenna heilan disk dregurðu nafnið á diskinum yfir í lagalistann til að afrita öll lögin í einu lagi.
Röð laga
Til að breyta röð laga á diskinum sem þú ætlar að brenna smellirðu á nafn lagalistans. Þegar þú sérð lögin á listanum geturðu dregið þau til í þá röð sem þú vilt hafa þau.
Ef þú ert að afrita heilan disk helst lagaröðin sem var á frumútgáfunni ef þú færir ekkert til.
Settu geisladisk í tölvuna
Þegar lagalistinn er til seturðu tóman geisladisk í drif tölvunnar.
Þegar tölvan er til smellirðu á "Burn Disc" íkonið sem birtist í neðra horninu hægra megin í iTunes glugganum.
Geisladiskurinn brenndur

Diskurinn tilbúinn til notkunar
Þegar brennslunni er lokið lætur forritið þig vita með hljóðmerki. Tilvist tilbúins disksins er líka sýnd vinstra megin í iTunes forritinu. Þú getur núna tekið diskinn úr tölvunni til að spila hann í bílnum, afhenda hann sem gjöf eða hvað annað sem þú vildir gera með hann.
Möppur með tónlist inn í iTunes
Þegar þú vilt bæta við lögum í iTunes þarft þú ekki að gera það eitt og eitt lag í einu heldur getur þú sett lögin í möppur og flutt þær í heilu lagi inn í iTunes. iTunes mun bæta innihaldi möppunnar í lagasafnið þitt og merkja á viðeigandi hátt.
Svona ferðu að: Búðu til nýja möppu á skjáborðinu og dragðu þau lög sem þú vilt setja inn í iTunes inn í möppuna, t.d. lög sem þú hefur náð í af Netinu.
Lögunum bætt í iTunes lagasafnið
Því næst opnarðu iTunes. Undir "File" finnur þú valmöguleikann "Add to Library" eða "Add Folder to Library" sem þú síðan velur.
Finndu möppuna og smelltu á "Choose"
Gluggi mun birtast með tilmælum um að finna möppuna með lögunum sem á að bæta við iTunes lagasafnið þitt. Veldu möppuna sem þú skapaðir á skjáborðinu eða hvar sem þú annars vistaðir hana (þarf ekki endilega að vera á skjáborðinu).
Með því að smella á "Choose" afritast innihaldið inn í iTunes.
Skoðaðu nú iTunes lagasafnið þitt og þú munt sjá nýju lögin þar flokkuð á viðeigandi hátt.
Hvernig á að flokka og breyta upplýsingum um lög
Lög sem eru tekin beint af geisladiskum eða keypt bera með sér ákveðnar upplýsingar svo sem um tegund tónlistar, listamann og fleira. Stundum vilt þú breyta þessum upplýsingum.
Svona gerir þú það:
-
Opnaðu iTunes og skyggðu (veldu) með því að smella á það lag eða þau lög sem þú vilt breyta upplýsingum um. Ef þú vilt velja (skyggja) mörg lög í einu þá veldu það efsta og haltu svo niðri "Shift" lyklinum meðan þú velur neðsta/síðasta lagið. Nú verða öll lögin þarna á milli skyggð eða valin. Ef lögin sem þú vilt velja eru ekki öll í röð geturðu haldið niðri "Ctrl" lyklinum meðan þú smellir á lögin sem þú vilt velja.
-
Þegar þú ert búinn að velja lagið eða lögin sem þú vilt breyta upplýsingum um, gerðu þá eftirfarandi:
- Farðu í "File"
- Veldu "Get Info" sem birtist um miðbik listans undir "File"
-
Þá birtist listi með þeim lögum sem þú vilt gera breytingarnar á og þú getur valið og breytt eftirfarandi:
- Nafni lags
- Nafni listamanns
- Útgáfuári
- Nafni disks
- Nafni lagahöfundar
- Númeri lags eins og það var á upprunalegum diski
- Tegund tónlistar
- Og nokkrum öðrum hlutum
Þegar þú hefur framkvæmt breytingarnar skaltu smella á "OK" neðst í glugganum til að staðfesta breytingarnar. Ef þú vilt halda áfram og gera breytingar á fleiri lögum í iTunes safninu smelltu þá á "Next" takkann.
Veitur (e; RSS Feeds)
Orðið veita vísar til þess að hægt er að nálgast margmiðlunarefni á tilteknum vef og oftast er þá nýju efni bætt þar við reglulega. Ef efnið er hljóðskrár (oftast MP3) þá er talað um hlaðvarp (e; podcast). Hægt er að gerast áskrifandi að slíkum veitum eða hlaðvarpi og láta tölvuna athuga reglulega hvort nýtt efni stendur til boða. Ef veita stendur til boða á tiltekinni heimasíðu er sérstakur valhnappur uppljómaður sem tilgreinir um tilvist hennar.
Hlaðvarð (e; Podcast)
Hlaðvarp getur verið ýmislegt t.d. heimatilbúið útvarpsefni sem einhver setur á Netið og þú getur halað niður og hlustað á í iTunes eða á iPodinum. Margt af þessu efni er gjaldfrjálst, annað í áskrift og sumt er keypt eftir hendinni svo sem einstakar bækur.
Hvers konar efni er hlaðvarpað?
Hér er af mörgu að taka. Fólk býr til hlaðvarp um öll sín hjartans mál allt frá íþróttum yfir í bókmenntir. Sumar útvarpsstöðvar útbúa líka reglulega efni um ýmis mál.
Hvar finnur þú hlaðvarp?
Þú getur fundið hlaðvarp víðsvegar á Netinu. Vinsælt yfirlit um hlaðvarp í boði er að finna í "iTunes Store". Þangað kemstu á eftirfarandi hátt:
- opnaðu iTunes
- veldu "iTunes Store" í valmyndinni til vinstri
- veldu "Podcasts" í valmyndinni til vinstri í versluninni
Þarna færðu yfirlit iTunes yfir hlaðvörp. Þú getur skoðað hvað er í boði út frá málefni eða nafni efnis eða úr því úrvali sem Apple setur fram.
Nokkur vinsæl hlaðvörp
Niðurhal og áskrift að hlaðvarpi
Hvernig meðhöndla ég hlaðvörp (e; podcasts)? Ef þú finnur hlaðvarp sem virðist áhugavert þá smellir þú á það. Þá birtist iTunes síða sem er eins og hinar nema á henni er listi yfir þau dagskráratriði sem í boði eru í hlaðvarpinu. Það gæti t.d. verið framhaldssaga í mörgum lestrum sem myndi þá birtast í jafn mörgum línum og lestrarnir eru eða ef um fyrirlestraröð væri að ræða myndi hver þeirra birtast. Nú hefur þú um tvennt að velja, þ.e. hlusta á lesturinn eða hlaða honum niður. Til að hlusta tvísmellirðu á lesturinn sem þú hefur áhuga á en ef þú vilt geyma hann smellirðu á "get episode" hnappinn. Flest hlaðvörp eru alveg gjaldfrjáls, önnur leyfa þér að kaupa t.d. einstakar sögur og síðan eru hljóðbókasíður eins og Hlusta.is þar sem þú getur hlaðið niður því efni sem þú vilt ef þú ert áskrifandi.
Hvert fór lesturinn?
Ef þú halar niður lestri þá verður hann aðgengilegur í "Podcasts" safninu í iTunes hjá þér. "Podcasts" íkonið er í listanum til vinstri. Þegar þú smellir á það íkon birtast öll þau vörp sem þú hefur hlaðið niður og undir hverju allir einstakir þættir sem tilheyra því eins og t.d. allir lestrar í einni skáldsögu.
Þú getur líka gerst áskrifandi
Ef þú hefur áhuga, geturðu fengið nýtt efni um leið og það er tilbúið til dreifngar frá tilteknu varpi, t.d. nýr lestur í skáldsögu eða ný fréttaskýring. Til að verða áskrifandi að nýju efni undir þessu tiltekna varpi þá lýsirðu (e; highlight) nafn varpsins og smellir síðan á "subscribe" hnappinn sem er neðst í glugganum. Nú hlaðast nýir lestrar sjálfkrafa niður í hlaðvarpasafnið ("Podcasts") iTunes hjá þér um leið og útgefandinn gerir þá aðgengilega.
Efnið yfir á iPod
Ef þú ert með varp í iTunes þá hleðst það niður á iPodinn um leið og þú samhæfir (e; sync) hann tölvunni þinni næst.
Að eyða hlaðvarpi
Ef þú vilt ekki lengur eiga tiltekið varp þá einfaldlega velurðu það og eyðir eins og þú myndir eyða út dægurlagi í iTunes. Mundu samt að það mun þá líka hverfa úr iPodinum þínum næst þegur þú samhæfir hann og tölvuna.
Hætta áskrift
Auðvelt er að hætta áskrift. Veldu nafnið á varpinu og smelltu á "unsubscribe" hnappinn neðst í iTunes glugganum.
Nú ættir þú að hafa orðið margs vísari um hlaðvarp og vonandi nýtist þér þessi þekking til mikillar ánægju.
|